Stafræn markaðssetning
& efnissköpun

Þjónustan

  • UMSJÓN SAMFÉLAGSMIÐLA

    Heildarumsjón samfélagsmiðla þar sem við sjáum um reglulegar birtingar svo þinn miðill haldist lifandi og spennandi. Tekið er mið af hverjum viðskiptavini fyrir sig og út frá því myndað ákveðið form í útliti, textagerð og efnissköpun.

  • STAFRÆNAR HERFERÐIR

    Við setjum upp vandaðar auglýsingaherferðir á samfélagsmiðlum á viðeigandi markhópa þar sem þeim er síðan fylgt eftir með tölfræðilegum niðurstöðum.

  • EFNISSKÖPUN

    Efnissköpun er lykilþáttur í að ná fram virkni á samfélagsmiðlum og auka áhuga fylgjenda með að búa til efni sem vekur athygli og skiptir máli.

    Við framleiðum efni fyrir alla miðla, hvort sem það séu ljósmyndir, myndbönd eða grafískar auglýsingar.

Um okkur

Við hjá LIKE markaðsstofu höfum unnið með stórum sem smáum fyrirtækjum frá byrjun árs 2021.

Upphafið á stofnun fyrirtækisins má segja að hafi verið undrun okkar á hve mörg fyrirtæki væru að vannýta samfélagsmiðla sína. Því vildum við bjóða upp á lausn á þessum vettvangi, heildarumsjón samfélagsmiðla.

Með því búum við til hágæða efni sem við deilum reglulega á miðlunum og útsetjum vandaðar auglýsingaherferðir. Ásamt því veitum við alhliða ráðgjöf í markaðsmálum.

Með þessari þjónustu viljum við aðstoða fyrirtæki að ná sínum markmiðum, hvort um sé að ræða aukna vörumerkjavitund, sölu og þess háttar.

Við bjóðum upp á persónulega þjónustu og tökum vel á móti fyrirspurnum.

Verkefni

Viðskiptavinir

Við viljum heyra frá þér!

Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt fá tilboð!

like@like.is

Ármúli 13, 105 Reykjavík